Verslunin hjá Hrafnhildi var stofnsett árið 1992 af Hrafnhildi Sigurðardóttur, sem þá var nýflutt heim til Íslands með eiginmanni sínum, Antoníusi Þ. Svavarssyni, og þrem börnum eftir langvarandi dvöl erlendis. Það hafði lengi verið draumur Hrafnhildar að setja á stofn tískuvöruverslun sem verslaði með vandaðan kvenfatnað enda hafði hún lengi haft tækifæri til að fylgjast með því sem var að gerast á því sviði í nágrannalöndum okkar, einkum í Þýskalandi.
Fyrstu árin var verslunin í heimahúsi í Fossvogi, en árið 1996 var hún flutt í leiguhúsnæði að Engjateigi 5. Árið 2000 keypti Hrafnhildur allt húsið að Engjateigi 5 og á því ári var verslunarhúsnæðið stækkað mikið og því breytt í núverandi horf. Hrafnhildur féll frá árið 2002 aðeins fimmtug að aldri. Síðan þá hefur fyrirtækið verið starfrækt undir stjórn Antoníusar. Hefur stefnan verið að halda vel á lofti því merki, sem Hrafnhildur reisti í upphafi og byggist á vandaðri vöru og góðri þjónustu.